M7 lausnir

Lausnir í D365 F&O og AX

Hvítur bakgrunnur með nokkrum línum á
Hvítur bakgrunnur með nokkrum línum á
Hvítur bakgrunnur með nokkrum línum á
Hvítur bakgrunnur með nokkrum línum á

M7-Bankalausnin

M7-Bankalausnin er yfirgripsmikil lausn til að sinna rafænum bankasamskiptum. Fá yfirlit, sýsla með kröfur og fylgjast með raunstöðu reikninga. Sinna greiðslum til lánadrotta og innborganir. Allt fært í rauntíma inní bókhaldskerfið. Lausnin er þróuð fyrir D365 Finance & Operation en auk þess er fjöldi fyrirtækja sem nýtir sér lausnina í Microsoft Dynamics Ax2009 og Ax2012.


Einblöðungur um M7-Bankalausn er hér. 

M7-Samþykktarlausnin

M7-Samþykktarkerfið er öflug lausn fyrir frágang og samþykktir reikninga. Lausnin er skrifuð fyrir D365 Finance & Operation. Sú útgáfa byggir á eldri lausnum M7-Samþykktarkerfis sem notuð hefur verið með góðum árangri í Microsoft Dynamics Ax2009 og Ax2012. Lausnin er aðgengileg sem App til samþykktar og höfnunar reikninga. Sveigjanleiki og einföld uppsetning á samþykktarreglum tengdar lánadrottnum. 


Einblöðungur um M7-Samþykktarlausn er hér.

M7-Skeytamiðlun / Rafrænir Reikningar

M7-Rafænir Reikningar. Lausnin meðhöndlar bæði sendingar og móttökur rafrænna reikninga í viðskiptakerfum D365 Finance & Operation sem og í Microsoft Dynamics Ax2009 og Ax2012.  Skeytamiðlun M7 sér síðan um allt það sem snýr að miðlun rafrænna reikninga jafnt innanlands sem erlendis.   Rafræn samskipti er orðinn að kröfu margra fyrirtækja í dag og þörfin fer vaxandi. Kerfið getur tengst öllum skeytamiðlunum á Íslandi.


Einblöðungur um M7-Skeytamiðlun er hér.

Gabríel – öruggt millilag milli Dynamics og umheimsins

Tengdu Dynamics AX og Dynamics 365 Finance & Operations við vefverslanir, öpp, sjálfsafgreiðslu og kerfi samstarfsaðila á öruggan, einfaldan og stöðugan hátt.

Fyrirtæki þurfa í dag að tala við fleiri kerfi en nokkru sinni fyrr. Vefverslunin þarf vöru- og birgðaupplýsingar, sjálfsafgreiðslan þarf að fletta upp viðskiptavinum og þjónustukerfin þurfa aðgang að gögnum í rauntíma. Gabríel er millilag sem M7 hefur þróað til að mæta þessari þörf. Lausnin situr á milli viðskiptakerfisins og annarra kerfa og veitir þeim stýrðan og öruggan aðgang að réttum gögnum í gegnum nútímalegar vefþjónustur (API).

Hvernig virkar Gabríel?

Gabríel birtir gögn og aðgerðir úr Dynamics sem vel skilgreindar vefþjónustur, til dæmis fyrir viðskiptavini, vörur og sölusögu. Ytri kerfi tala bara við Gabríel. Þau þurfa því aldrei beinan aðgang að viðskiptakerfinu sjálfu. Samskiptin virka í báðar áttir, því Dynamics getur líka kallað út í ytri þjónustur í gegnum Gabríel.


M7 - App & Lausnir

Sérsniðnar lausnir sem láta Dynamics vinna fyrir þig.


Ekkert fyrirtæki er eins og þarfirnar eru ólíkar. M7 þróar og smíðar öpp og sértækar lausnir fyrir viðskiptavini í Microsoft Dynamics 365 Finance & Operations, sniðnar að verkferlum hvers fyrirtækis.


Lausnirnar vinna með viðskiptakerfinu og nýtast jafnt í tölvu, spjaldtölvu og síma. Starfsfólk á skrifstofunni, á lagernum eða úti á vettvangi hefur þannig réttar upplýsingar við höndina, hvar sem það er.


Við byggjum á áralangri reynslu af Dynamics. Auk lausna fyrir D365 Finance & Operations höfum við þróað fjölda lausna fyrir Dynamics AX 2009 og AX 2012.



Hafðu samband við ráðgjafa M7 og við finnum lausnina sem hentar þínum rekstri.