Dynamics D365 Finance - ráðstefna með viðskiptavinum
Fremstu sérfræðingar Dynamics D365 F&O með vinnustofur og fyrirlestra

Í síðustu viku lauk afar vel heppnaðri ráðstefnu í Slóvaníu um Dynamics 365 Finance and Operation og Power Platformið. M7 var á staðnum ásamt fjölda viðskiptavina sem fóru með.
Hugbúnaðarsérfræðingar okkar fengu þarna einstakt tækifæri til að fræðast og hitta fremstu sérfræðinga í heiminum í dag í Dynamics D365. Fjölmargar vinnustofur og fyrirlestrar voru megin uppistaða ráðstefnunnar.
Margt af því sem rætt var á ráðstefnunni hefur M7 þegar innleitt hjá viðskiptvinum . En þarna komu einnig fram áhugaverðir upplýsingar um það sem koma skal í D365 F&O á næstu misserum. M7 mun kynna fyrir viðskiptvinum á næstunni þá fjölmörgu möguleika sem eru í þróunn og munu koma fram á sjónarsviðið á næstu vikum og mánuðum.
DynamicsMinds er árleg þriggja daga ráðstefna um Dynamics 365 haldin í mai. Öll umgjörð, fundarsalir, vinnustofur og staðsetning er framúrskarandi og með því besta sem við höfum séð. Við stefnum á að mæta með hóp viðskiptavina í maí 2026.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá ráðstefnunni.
