Framúrskarandi fyrirtæki 2026
M7 ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI

M7 hefur enn og aftur hlotið viðurkenningu og vottun Creditinfo sem ,,Framúrskarandi fyrirtæki". Við erum stolt af þessum árangri, sem er sameiginlegt verkefni M7-teymisins og staðfesting á þeirri sterku liðsheild sem við höfum byggt upp.
Creditinfo hefur í 18 ár greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt þeim sem skara fram úr viðurkenningu fyrir árangurinn. Aðeins um 2% fyrirtækja á Íslandi uppfylla ströng skilyrði Creditinfo og þar eru til grundvallar lögð markviss vinnubrögð og traustur rekstur.
Hjá M7 starfa þrjátíu sérfræðingar á faglegum og jákvæðum vinnustað þar sem sem öll leggja sig fram við að leysa verkefni viðskiptavina og veita þeim fyrsta flokks þjónustu. Hér í Torfhöllinni við Silfursmára eiga systurnar samvinna og þekking samleið alla daga.
Takk, M7-teymi, fyrir frábært starf og takk fyrir traustið, kæru viðskiptavinir og samstarfsaðilar!









