Fjölgun forritara hjá M7 – Fanney, Hrólfur og Valdimar
Reynslumiklir forritarar bætast í hópinn.

Nýlega bættust í hópinn hjá okkur þrír öflugir forritarar sem eiga að baki langa reynslu í AX og Microsoft D365 F&O. Þau Fanney Hrund Jónasdóttir, Hrólfur Gestsson og Valdimar Snorrason.
Fanney Hrund Jónasdóttir kemur frá Advania þar sem hún vann við hugbúnaðarþróun. Fanney kemur með mikla reynslu bæði í Microsoft Ax og Business Central. Fanney hefur verið að forrita lausnir bæði í Microsoft Ax og Business Central. Hún hefur unnið mikið í vöruhúsalausnum og þekkir þau ferli vel. Hún mun verða kærkomin viðbót inní Vöruhúsateymi M7. Fanney prjónar og heklar öll kvöld og helgar þegar hún er ekki að forrita.
Valdimar Snorrason kemur til M7 frá Motus þar sem hann vann við þróun greiðslulausna og sjálfvirknivæðingar tengt fjárhagskerfum. Þar áður stýrði hann hugbúnaðarþróunardeild hjá Sýn. Valdimar verður kærkomin viðbót inní posa og greiðslulausna hópinn okkar. Valdimar er hestamaður og hefur farið á nokkur hestamannamótin í gegnum tíðina.
Hrólfur Gestsson kemur frá Wise og síðar WiseFish, þar sem hann starfaði við forritun bæði í tengslum við afgreiðslulausnir, samþættingar og sjávarútvegslausnir. Hrólfur verður okkar maður í ýmsum samþættingum og afgreiðslulausnum. Hrólfur er öflugur söngmaður og hefur sungið bassaröddina í meira en 15 ár.
Fanney, Valdimar og Hrólfur fóru öll í Háskólann í Reykjavik og kláruðu þar B.Sc í tölvunarfræði.
Enok framkvæmdastjóri M7 sagði á starfsmannafundi að þessu tilefni: „ Það er gríðarlegur fengur í að fá svona reynslumikla forritara sem hluta af okkar liðsheild með áratuga reynslu úr upplýsingatatækni. Við erum með mörg stór verkefni framundan og þar munu þau öll þrjú gegna mjög mikilvægu hlutverki.“
