Innflutningspartý í Torfhöllina
M7 fagnaði nýjum höfuðstöðvum með eldhressu innflutningspartýi

M7 fagnaði nýjum höfuðstöðvum með eldhressu innflutningspartýi
Fimmtudaginn 15. október opnuðum við hjá M7 dyrnar að nýju höfuðstöðvunum okkar í Torfhöllinni að Silfursmára 12 og héldum innflutningspartý af því tilefni. Múgur og margmenni mætti: viðskiptavinir, samstarfsaðilar, vinir og velunnarar. Stemningin var eins og best verður á kosið.
Nýtt heimili og uppfært útlit
Enok Jón Kjartansson framkvæmdastjóri bauð gesti velkomna og notaði tækifærið til að kynna uppfært lógó M7.
Flutningurinn í Torfhöllina er stórt skref fyrir okkur. M7 hefur vaxið jafnt og þétt, og það er fyrst og fremst að þakka frábæru starfsfólki og traustum viðskiptavinum sem hafa fylgt okkur í gegnum árin. Við vildum skapa okkur heimili sem rúmar ekki bara hópinn eins og hann er í dag heldur líka þann sem við ætlum að verða. Í nýju höfuðstöðvunum höfum við rými til að halda áfram að stækka, taka á móti nýju fólki og þjónusta viðskiptavini okkar enn betur. Uppfært lógó endurspeglar þennan nýja kafla: sama M7 og áður, en tilbúið fyrir framtíðina.
Uppistand og óvænt borðaklipping
Bolli Már sá um að halda uppi fjörinu með uppistandi sem vakti mikla lukku. Hann tók síðan að sér, nokkuð óvænt, að klippa á borðann og opna höfuðstöðvarnar formlega. Það gerði hann með stæl og elegans eins og honum einum er lagið.
Takk fyrir komuna!
Við færum öllum sem litu við í nýju höfuðstöðvarnar okkar þúsund þakkir. Það var ómetanlegt að fá að deila þessum tímamótum með ykkur. Dyrnar í Torfhöllinni standa ykkur ávallt opnar og við hlökkum til að taka á móti ykkur aftur, hvort sem er í kaffi, á fund eða bara til að spjalla.









