M7 er fyrirmyndar fyrirtæki í rekstri
Fyrirmyndarfyrirtæki í Rekstri

M7 ER FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI
Keldan í samstarfi við Viðskiptablaðið tekur saman lista á hverju rekstrarári yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar í rekstri. M7 hlýtur þessa viðurkenningu núna sjötta árið í röð. Tilkynnt var um listann í sérblaði Viðskiptablaðsins og Keldunnar um Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2026, sem kom út núna á dögunum.
Til að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla eftirfarandi skilyrði.
Rekstrarárin 2025 og 2024 liggja til grundvallar fyrir viðurkenninguna 2026, en einnig er tekið tillit til rekstrarársins 2023.
Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni, til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.
,,Við hjá M7 erum ákaflega stolt af því að vera á þessum lista sjötta árið í röð. Traustur rekstur skapar jákvæð vaxtarskilyrði og öryggi. Við slíkar aðstæður höfum við svigrúm til að hugsa til langtíma og byggja upp einstaklega öflugt teymi. Það skiptir öllu máli í þekkingariðnaði þar sem mannauðurinn er langstærsta auðlind hvers vinnustaðar," segir Enok Jón Kjartansson, framkvæmdastjóri M7.
,,Við erum samhent í því hjá M7 að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu þar sem markmiðið er að fara fram úr væntingum. Sú nálgun er lykillinn að okkar árangri. Þessi viðurkenning er með öðrum orðum gæðastimpill á starfsemi sem gengur vel af því að við höfum á að skipa mögnuðum mannskap," bætir Enok við.









