Stóri Neyðarkallinn er mættur til M7
M7 styrkir björgunarsveitirnar

M7 styrkir björgunarsveitirnar
M7 hefur um árabil keypt Neyðarkallinn til styrktar björgunarsveitum landsins og í ár var engin undantekning. Siggi Ólafs frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi heimsótti okkur og afhenti M7 stóra Neyðarkallinn, sem er tákn um myndarlegan stuðning við þetta mikilvæga starf.
Björgunarsveitirnar sinna útköllum allan sólarhringinn, allt árið um kring og oft við krefjandi aðstæður. Starfið er að mestu unnið af sjálfboðaliðum og byggir á stuðningi almennings og fyrirtækja. Sala Neyðarkallsins er ein mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna og stendur undir búnaði, þjálfun og rekstri.
Hjá M7 lítum við á stuðning við björgunarsveitirnar sem hluta af samfélagslegri ábyrgð okkar. Við erum stolt af því að leggja okkar af mörkum og færum Hjálparsveit skáta í Kópavogi og björgunarsveitarfólki um allt land bestu þakkir fyrir störf sín.









